Hönnun hússins
+Arkitektar var falið það verkefni að hanna byggingu og umhverfi að Selásbraut 98. Einstakt hugvit þar sem hugað var að þægindum, notagildi og stíl í hverju skrefi á myndum kjarna þjónustu og íbúða.
Verkefnið sýnir samspil þessara þátta í framúrskarandi hönnun sem endurspeglar nútímaþarfir og notagildi í okkar ört vaxandi samfélagi og sér í lagi endursköpun ásýndar innan rótgróinna hverfa á höfuðborgarsvæðinu.
Garður & þjónusturými
Á lóðinni verður torg, gróið útisvæði, bekkir og þéttur gróður milli bílastæða og gangstéttar Vesturás. Sérstök bíla- og hjólastæði verða snyrtilega frágengin, lögð grassteini. Á neðstu hæð byggingar verða atvinnu- og þjónusturými.

Endursköpun ásýndar
Selásbraut 98 er hannað og byggt með það að leiðarljósi að auka enn við gæði hverfisins. Glæsileg bygging í rótgrónu hverfi þar sem þjónusta og samfélag lifnar við og verður viðbót sem eykur ánægju og lífsgæði íbúa.
