Hverfi í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins
Einstök staðsetning í útjaðri borgarinnar nærri frábærum útivistarmöguleikum. Rólegt og fjölskylduvænt hverfi.
Fullbúnar íbúðir með vönduðum innréttingum, gæða heimilistækjum og fallegu útisvæði.
Steinsnar frá Elliðaárdalnum sem teygir sig langt inn í hjarta borgarinnar.

Friðsæll lífsstíll
Seláshverfið er tilvalið fyrir þá sem vilja vera aðeins út af fyrir sig en samt á höfuðborgarsvæðinu. Útivistarmöguleikar eru allt um kring og má þar nefna Elliðavatn, Rauðhóla, Heiðmörk, Rauðavatn og Rauðavatnskóg. Elliðaárdalurinn teygir sig langt inn í hjarta borgarinnar og þar einfalt að eyða deginum á göngu eða annarskonar hreyfingu.
Nærumhverfi
Við húsið sjálft verður fallegur garður með bekkjum og trjágróðri. Snyrtilegt grunnskólasvæði Selásskóla er hinu megin við götuna og út frá því svæði eru göngu- og hjólaleiðir í átt að Rauðavatni. Það tekur svo örfáar mínútur að ganga svo niður að íþróttasvæði Fylkis þar sem einnig finna hverfissundlaug Árbæjar.


